Ég hefði ekki þurft að læra Lisbon sáttmálann, né nokkuð annað… Ég hefði semsagt ekki þurft að eyða síðustu 2 dögum í stresskasti, svefnleysi og lystarleysi því þetta próf var ekkert erfitt! Bara búið á nóinu, og afþví að ég gat svarað öllu, þá er ég að sjálfsögðu farin að velta því fyrir mér hvort að ég hafi kannski smá oggu poggu ef til vill fallið… mætti halda að maður væri haldinn sjálfseyðingarhvöt!
Ef að kennari brosir, og segir svo “you survived” hvernig í andskotanum á maður að túlka það???
En það góða er allavega, að þetta var sigur fyrir sálina. Sigur að fara í munnlegt próf og gera sitt besta, og lifa það af, sem er klárlega egóbústið sem ég þarf á að halda fyrir næsta, sem er á föstudagsmorguninn. Því það er einmitt próf sem ég sleppti að taka, af hræðslu minni við munnleg próf, á síðustu önn. Svo sama hvernig fer, þá ætla ég að fara þarna inn og gera mitt allra allra besta!
Af einhverjum ástæðum finnst mér ég líka vita heldur mikið meira um environmental politics núna heldur en í janúar :p
Jæja, kominn háttatími fyrir stressaðar stelpur.
Ísland eftir viku…. mjög mjög mjög blendnar tilfinningar.



Fjóla sagði,
júní 25, 2008 @ 6:10 pm
Til hamingju með sumarfríið þitt, hlakka til að fá þig heim! Vúhúúú
María sagði,
júní 30, 2008 @ 4:08 pm
Vúhú! Gaman að fá þig heim, vona bara að við fáum báðar svolítið frí í sumar svo við getum hist, en annars er það þá bara veturinn, er þaggi?