One fine daaaaaayyyyy

Ég er búin að vera í íþróttabuxum í viku. Fyrir utan þegar ég mætti í pilsi í eitt próf og fór svo út í sólbað í stuttbuxum. Annars alveg í heila viku, mega sexý….
En já, mér tókst að vakna í bæði prófin, þrátt fyrir 2 tíma svefn fyrir fyrra prófið og 3 tíma svefn fyrir það seinna. Sem er jú í lagi, enda er enginn svefn jafn réttlátur og yndislegur og kúr eftir próf, mmmmmm =)
Búið að ganga ágætlega, ég vona nú að þetta sleppi allt saman, en ég er orðin mjög, mjög þreytt. Mér finnst ég vera búin að vera í nánast stanslausri lærdómstörn síðan í lok mars. Fyrir utan góðar pásur með Lilju og Fjólu… Svo er hugurinn ekki hérna lengur, hann er á tjaldsvæðunum… Og ég er farin að sakna miðnætursólarinnar. Og systra minna, allra. Og svo langar mig líka að vera skotin í einhverjum… mega langt síðan ég hef verið skotin í einhverjum =(

Já, og Írar eru komnir í hóp þjóða sem ég þoli ekki í augnablikinu. Þeir deila fyrsta sætinu með Svíum, sem að munu alltaf, alltaf vinna keppnina. Að hafna Lisbon í þjóðaratkvæðagreiðslu af því að þeir skildu hann ekki! Halló! Fyrst að ég skildi fjárans sáttmálann, þá hljótið þið að geta gert það líka! Svo eru þeir heldur ekkert sætir…

Ég tosa svo mikið í hárið á mér, að ég sver það að það verður allt farið af eftir viku…
Ok, búin að snúa við sólarhringnum, svo ég ætla að læra meira og meira og meira.
takk fyrir kommentin sæta fólk =)
Knús í krús

Margrét Helga Guðmundsdóttir, sérfræðingur í Evrópusambandinu =)

Say your words