Ég hugsa rosalega mikið í próftíð.
Ég var að lesa mbl.is, og þá hugsaði ég, að í fyrsta skiptið í mörg ár, þá langar mig virkilega til að taka þátt í kvennahlaupinu. Veit ekki hvort það sé vegna þess að ég held að ég sé loksins búin á gelgjunni, eða vegna þess að í fyrsta skiptið í mörg ár, gæti ég virkilega skokkað skemmtiskokkið án þess að drepast á leiðinni… Fyndið hvað það er mikið sem maður ætlar að gera á næsta ári, eða í næstu viku… Í fyrra ætlaði ég að taka mér sumarfrí á næsta ári, og var í rauninni harðákveðin í því þangað til gengið fór á flug, og ég fékk af einhverjum sálrænum ástæðum kaupsýki á sama tíma… Þannig að ég stefni á sumarfrí… á næsta ári.
Ok, ég ætlaði að skrifa meira, og líka um ægilegar sápupælingar sem að leiddust útí pælingar um fyrrverandi tilvonandi ástmanninn sem var að senda mér póstkort og kom öllu af stað aftur sem að leiddust útí pælingar um rússíbanann sem að sálarlífið mitt er búið að vera í síðasta árið… En Steini var að senda mér Íslensku Leiðina á pdf, húrra fyrir honum! Svo núna ætla ég að lesa áður en ég dembi mér í síðustu tvo kaflana í Europe Recast. Metnaðurinn er ekki að gera sig fyrir þetta próf, plús ég fékk tak neðst í bakið í gær þegar ég dröslaðist með 20kg kassann minn á pósthúsið (sem var svo lokað og það var rigning og ég fór næstum því að grenja..) svo ég hef nú bara áhyggjur af því hvernig ég eigi að ná því að sitja 2 tíma próf á grjóthörðum stól :S
Þeir á Íslandi sem verða vaknaðir klukkan 6 á mánudagsmorguninn, mega hringja í mig, ég er dauðhrædd um að sofa yfir mig!
Bæjó



María sagði,
júní 10, 2008 @ 6:27 pm
Já, ég er sammála þér með kvennahlaupið, skellum okkur í þetta á næsta ári
Annars hélt ég að þetta væri alltaf í kringum 19. júní…
Þú átt alla mína samúð með pósthúsvandræðin, oj hvað ég skil þig! Hérna heima finnst mér líka frekar fáránlegt að pósthúsin loki 18 fyrir sunnan en 16:30 hér á Akureyri og á flestum stöðum á ,,landsbyggðinni”.
Hvernig gekk prófið annars?
Fjóla sagði,
júní 12, 2008 @ 5:30 pm
Vúhú, ég á verðlaunapening fyrir kvennahlaupið í ár, sem ég fékk fyrir að labba í kringum Hlíð, þú mátt eiga hann =) Gangi þér vel að lesa beibí!
Sigurrós sagði,
júní 13, 2008 @ 8:31 pm
ég gleymi alltaf blogginu þínu… vertu bara dugleg að lesa unga dama
koddu svo heiiiiiiiim!!!!