Það er svo gaman að svona niðurtalningum… vúhhú!
Eftir 15 daga, þá verð ég ekki að læra! Sei sei nei. Þá ætla ég að vera að gera eitthvað annað, sem ég er ekki búin að ákveða… Eins og kannski bara ekki neitt =)
Ég er hætt að vorkenna sjálfri mér fyrir að vera ennþá í prófum. Því ég er að lesa um sjálfbæra þróun, og það er svosem margt verra í heiminum en að vera í prófum til 20. júní… Eins og að vera í prófum til 30. júní…
Annars líða dagarnir allt of hratt! Fór í Ikea á laugardaginn, og kom heim með slatta af pappakössum. Var búin að fylla þá á 10 mín, og hef ekki snert þá síðan… Mun taka mér klukkutíma pásu á morgun til að druslast með þetta niður á pósthús, vonandi… Komst líka að því á mánudaginn, þegar þrumuveðrið var hálfnað, að niðurfallið útí porti var stíflað. Og vatnið var ca 4-5cm frá því að leka inní íbúðina mína. Það var ekki skemmtilegt… en ég er trukkur og lagaði niðurfallið =)
Fór svo á Sex and the City í gær. Og það tók 3 klukkutíma takk fyrir! Belgar greinilega ekki að flýta sér í bíói… jesús! Og ég varð fyrir smá vonbrigðum með myndina, segi ekki annað! Samt er ég ennþá að hugsa um hana, og þarf pottþétt að fara aftur, til að skoða fötin betur…
Og þó ég gæti talað illa um Belgíu, og Belgakjánana í marga, marga daga, þá finnst mér samt mega sorglegt að vera að fara heim ![]()
Jæja, pásan búin, á eftir að lesa soldið mikið í dag, og ég hafði hugsað mér að hlaupa einhverja kílómetra líka, í spandexbuxum… úje =)
Pabbi minn á afmæli í dag, til hamingju með afmælið!
Ok, bæ!



Silla sagði,
júní 7, 2008 @ 12:03 pm
Þetta er rétt að hafast hjá þér
Gangi þér vel í prófunum… og í að pakka niður og flytja 
‘Eg er byrjuð að henda í tösku og jiiii hvað er erfitt að velja hvaða föt ég eigi að taka með….
kysskyss
María sagði,
júní 10, 2008 @ 6:30 pm
Mig langar ekkert svakalega að sjá þessa mynd, fylgdist aldrei neitt sérlega vel með þáttunum…
En spandexbuxurnar… Kannski ekki alveg, það eru til fallegri íþróttaföt