Silence is golden

Hver sá sem að hefur gengið í gegnum próftíð með iðnaðarmenn vinnandi í næstu íbúð/húsi, og lifað það af er vinsamlegast beðinn um að setja sig í samband við mig. Því það er verið að gera upp húsin báðum megin við mig. Og fjárans þrjóskan í mér, að klára áður en ég fer að sofa, gerði það að verkum að ég fór ekki að sofa fyrr en undir morgun. Ég held ég hafi náð 4 tímum áður en hamarshöggin byrjuðu báðum megin við mig. Eyrnatappar virka ekki á þetta, öll bókasöfn eru stútfull af hávaðasömum Belgum, þannig að ef að þetta heldur áfram eru miklar líkur á að ég komi heim, og fari beinustu leið inná geðdeild. Án gríns… Ég veit alveg að ég fer yfirleitt í gegnum próftíðina á 4-5 tíma svefni á nóttu, en það á ekki að byrja þegar það eru heilir 10 dagar í fyrsta próf!
Annars er ég hálfnuð með BA ritgerðina mína. Og það er mikil, mikil gleði. Fyrir utan þá staðreynd að mér finnst þessi ritgerð vera tímamótaverk og afskaplega, afskaplega merkileg… að sjálfsögðu. Á morgun á ég svo fund við manninn sem að vinnur fyrir umhverfisráðuneytið í sendiráðinu í Brussel, og eftir þann fund verð ég vonandi komin með góðan ramma fyrir framhaldið. Og ég er búin með öll verkefni hérna, svo það er ekkert eftir nema frumlestur ca 7 greina, og þá er ég opinberlega betur stödd fyrir þessa próftíð heldur en nokkra aðra sem ég hef farið í, í mínu háskólanámi. Víííí =) Rosalegur dugnaður í gangi…
Og ég eldaði plokkfisk í gær! Alveg hellings helling! Í fyrsta skiptið sem að það er fiskur í matinn á þessu heimili síðan ég kom til Belgíu. Því að Fjóla sá alltaf um að elda fiskinn…
Jæja, hætt að vorkenna mér. Ætla í bað og stunda svo hugleiðslu, eða eitthvað sem virkar til að útiloka þessi hljóð, og halda lestrinum áfram. Þeir sem að villast ennþá hingað inn mega endilega skilja eftir spor, það gleður mitt litla hjarta óendanlega á þessum langa, langa lokaspretti….
Mig langar samt mest bara að fara að sofa…

Kyss og knús
Magga

4 svör hingað til »

  1. 1

    Lilja sagði,

    maí 29, 2008 @ 7:57 pm

    Þú færð alla mína samúð! Hef lent í þessu sjálf og það er ÖMURLEGT! Vona að þetta gangi samt allt vel hjá þér!

  2. 2

    Fjóla sagði,

    júní 2, 2008 @ 4:52 pm

    Mússímúss, gangi þér vel að lesa =)

  3. 3

    Unnur sagði,

    júní 2, 2008 @ 6:46 pm

    kvitt kvitt
    Gangi þér ofsa vel á lokasprettinum :)

  4. 4

    María sagði,

    júní 10, 2008 @ 6:30 pm

    Þriðja sporið sem ég skil eftir!
    Hlakka til að fá þig heim :)

Ummæli RSS · TrackBack URI

Say your words