Ójá… eftir 4 vikur verð ég vonandi búin með síðasta prófið mitt í stjórnmálafræði… Var einmitt í síðasta tímanum á þriðjudaginn, rosalega skrítið…
Allar ritgerðir og verkefni búið, nema 2 critical comments sem ég nenni engan vegin að pæla í… Og upplestrarfríið hafið. Ég ætla reyndar bara að nota helgina í að vinna í BA ritgerðinni og koma mér aftur í hlaupaform, ekkert búin að geta hlaupið útaf þessari sýkingu, en það á að vera orðið gott núna.
Annars er ég búin að panta flugfarið mitt heim. Á bókað sæti með Eurostar kl 16 held ég 24. júní, og svo flug til Íslands klukkan 21. Hlakka mikið mikið mikið til að koma heim, enda eru næstu 4 vikurnar hérna ekkert rosalega spennandi… Kem svo til Akureyrar 25. júní og byrja vonandi að vinna 26. júní. Þá verð ég líka búin að knúsa þessa í kaf…

Best og sætust, og sakna hennar helling…
Ef ég ætlaði að segja eitthvað merkilegt, þá er ég búin að steingleyma því, svo ég ætla að hella mér aftur í ritgerðina í smá stund fyrir svefninn…
Kyss og knús til Íslands!



Silla sagði,
maí 24, 2008 @ 5:40 pm
Gangi þér vel á lokasprettinum
knús
Magga sagði,
maí 24, 2008 @ 11:07 pm
Takk =)
Fyrir utan að bloggin á “lokasprettinum” eiga eftir að vera svona milljón…. en ég er viss um að það sé bara skemmtilegra =)