Ég á að vera að skrifa ritgerð… Og hvað er þá betra en að blogga bara, svona á meðan ég bíð eftir að Desperate Housewifes er búið að streemast?!
Og no worries mamma… ég er búin með 4 bls og ritgerðin á bara að vera 5… sem er ástæðan fyrir að ég er í pásu, ég er að hugsa um hvað ég ætla að taka úr þessu.
En já. Ég fór til Þýskalands í síðustu viku. Í einu skónum sem ég komst í, sem voru einhverjir sandalar. Og það var MEGA sárt þegar sólin skein á fótinn minn
Og mér leið ömurlega að geta ekki gengið og eyðileggja allt fyrir Fjólu og Gerðu frænku sem við gistum hjá. En ég á svo klára fjölskyldu! Gerða lánaði mér hjólið sitt, svo að ég þurfti ekki að labba neitt, heldur hjólaði bara út um alla Mainz, sem hér eftir verður kallaður bleiki bærinn. Æm in lov! Er án gríns alvarlega farin að íhuga það að læra þýsku á næsta ári, Þýskaland er ódýrara en Belgía, og jeminn hvað það er fallegt! Vorum líka með svo góðan gæd =)

Hér erum við Fjóla á æði stað í Mainz, að bíða eftir bestu samloku í heiminum =)
Um kvöldið fórum við svo á eitthvað sem ég veit ekki hvað heitir, þegar fólk fær einhvern ákveðinn tíma uppi á sviði og getur performerað. Flestir voru nú að lesa einhver ljóð á þýsku og ég skildi ekki baun í bala, bara einstaka orð. En það var samt mjög fyndið.

Hér eru Fjóla og Gerða fyrir utan lestarstöðina í Mainz. Við vorum á leiðinni til Frankfurt og Gerða var að fara að læknast. Hún er sko mega góður læknir! Svo eyddum við fimmtudeginum í Frankfurt, fengum okkur þýskan bjór og bretzel, sem ég lifi nú alveg af án þess að borða aftur á ævinni, kíktum í búðir og túristuðumst og lékum japanska túrista. Svo um leið og við fórum á lestarstöðina þá byrjaði að rigna. Smá stress að ná lestinni frá Köln til Liége, og ég var ekkert að hjálpa systur minni með töskurnar heldur, og svo helli helliringdi þegar við vorum komnar til Leuven. Svo það var bara pöntuð pizza og horft á dvd, mega kósí =)
Og á föstudeginum var það Brux, innflytjendahverfið, Atomium í 3ja skiptið á þessu ári, ég var nú ekki skemmtilegur gæd, soldið þreytt á þessu… Og aðeins verslað og tékkað á pissukarlinum og svona skemmtilegt. Og new mexico um kvöldið. Og let´s just say að það sé búið. Ég held ég sé búin að borða þarna 12 sinnum, og ég er komin með nóg… loksins. Og á laugardeginum vorum við að dúlla okkur, og versluðum svo helling og höfðum það kósí og nenntum ekki einu sinni út um kvöldið. Enda er miklu skemmtilegra að fara í gegnum fataskápinn sinn með systur sinni og fíflast. Og á sunnudeginum fórum við í langan labbitúr um Leuven og ég sýndi Fjólu allt sem ég gat ekki sýnt henni síðast, tékkuðum á froskakynlífi og meira skemmtilegt. Einn bjór á Oude og svo heim að kúra. Ég fíla systur mína. Hún er æði, það var æði að fá hana. Enda fór ég bara pínu að skæla þegar lestin hennar var farin í morgun =( Þangað til hún hrindgi í mig frá Liége til að segja mér að Thalys lestinni hefði seinkað um hálftíma, sem þýddi að hún missti af lestinni frá Köln til Frankfurt. Smá stress að finna aðra lest og komast á völlinn í tæka tíð, en það reddaðist alveg fyrst ég er að tala við hana á msn núna =)

Hér er Fjóla í garðinum að leita að froskakynlífi… djók, það er bara ég sem er með það á heilanum… en falleg brú samt =)
Annars er síðasta prófið mitt 20 júní, og þegar ég er búin með þessa ritgerð ætla ég að fara að panta mér flugfar heim. Stefnan er að koma heim til Íslands 24 júní, til Akureyrar 25 og helst að byrja að vinna 26! Hlakka mikið til, mikið að gera þangað til, en það verður afskaplega gott að komast heim.
Og af sólbrunanum mínum er það að frétta að ég fór að flagna. Helling! En það er að lagast. Enda er ég búin að vera óvenju upptekin af brjóstunum á mér undanfarna daga, alltaf að plokka skinnið.
Ok, núna ætla ég að klára þessa fjárans ritgerð og fara svo að kúra undir góðu góðu sænginni minni. Það er sko kalt úti og ég á bók, um shopaholic… and a sister =)
Sorrý hvað þetta var löng færsla. Heimsóknunum hingað fer reyndar stórminnkandi, en það fylgir víst sumarfríum og próflokum… brotna ekki!
Knús til allra



Silla sagði,
maí 19, 2008 @ 9:23 pm
kvitt kvitt fyrir innlitið…. gangi þér vel. knúsesss
mamma sagði,
maí 20, 2008 @ 9:19 pm
Jæja , þá er bara að telja niður þangað til þú ferð að aðstoða Belga á Íslandi!! Knús Mamma
Þórunn Edda sagði,
maí 21, 2008 @ 1:22 pm
Það er líka svo skemmtilegt að hjóla…miklu skemmtilegra en að labba :o)
Unnur sagði,
maí 21, 2008 @ 3:56 pm
Heppin þú að fá heimsókn
Kiss kiss