Ég virðist ætla að vera fastagestur heilbrigðisstofnana í hverju einasta landi sem ég bý í. Og þess vegna get ég sagt af fullu hjarta: Guði sé lof fyrir EES- samninginn, og það ætti nú endilega að fara að hefja samningaviðræður við ESB af alvöru!
Þetta var reyndar tíðrætt um helgina, enda var hún Lilja í heimsókn hjá mér. Dröslaðist í rútu alla leiðina frá Strassbourg, sem ég bara myndi aldrei nenna… En við áttum svaka góðan tíma saman, rólegheit og sól. Endalaus sól. Hún er búin að skína stanslaust í 2 vikur, og 20-25 stiga hiti uppá hvern dag, þetta fer nú bara alveg að verða gott í bili held ég… Enda hefur maí ekki verið svona góður í Belgíu í meira en öld, sagði kennarinn minn áðan.
En Liljuheimsókn var mega næs. Sýndi henni allt það merkilegasta í Leuven, við sáum fullt af froskum fjölga sér, new mexico, café komeet og nosh. Bara næs! Svo þegar hún var farin hljóp ég í síðasta skiptið í bili, því miður ![]()
Í gær skelltum við Íslendingarnir okkur svo á ströndina til Ostende. Það var GEÐVEIKT! Atlantshafið var að vísu pínu kalt, en vandist furðu fljótt. Hræðilega gaman að leika sér í öldunum. Mér fannst ég nú ekkert liggja neitt mikið í sólbaði. Plús ég var staðráðin í að fá lit á mallann, fannst ekkert svo hlýtt útaf vindinum og hélt að sólin í maí væri nú ekki svo sterk, og þar af leiðandi bara með sólarvörn á öxlunum… Boy I was wrong! Kom heim í gærkveldi, og ég er lobster! Beint í kalt bað og þurfti að taka 3 verkjatöflur til að geta sofnað. Í gammosíum, sokkum og langermabol btw… Ég hef sko aldrei brunnið svona mikið!

Þetta er mynd af mér, nýkomin heim að væla í mömmu minni á skype… En svo fékk ég eitthvað mega krem í apótekinu í morgun, sem svínvirkar. Er orðin passlega brún uppað brjóstum, restin er ennþá rauð, en held það lagist fljótlega =)
En það var líka ekki ástæðan fyrir að ég vaknaði klukkan 6 í morgun. Onei…
Ég hef verið bitin í aðra ristina fyrir svona 1-2 mánuði, pottþétt af köngulónni sem ég sópaði út um daginn… og það klæjaði bara stundum, og ég bar á það og hugsaði svo ekkert útí þetta. Svo í gær byrjaði það aðeins að hlaupa upp, og hélt áfram. Og áfram. Og ég gat ekki sofið. Svo ég fór til læknis í dag. Og þá kemur í ljós að ég er með sýkingu í löppinni. Hún er tvöföld og ég get ekki gengið. Er komin á sýklalyf og sterakrem og þarf að fara aftur til læknis á föstudaginn. Þess vegna elska ég EES- samninginn. Því það kostar að fara til læknis, og fátækir námsmenn veifa ekki 100 evra seðlum hingað og þangað…
En það versta er, að ég á miða með lest til Frankfurt í fyrramálið!
Fjóla er loksins, loksins að koma, og þá get ég ekki gengið
En ég held í vonina að þessi lyf geri kraftaverk í nótt. Keypti líka sun lolly til að kæla, en ég borðaði hann… Sem betur fer er Fjóla 3/4 sjúkraþjálfari, og Gerða frænka sem við ætlum að gista hjá í Þýskalandi er splunkunýr læknir =)
Úff, þetta er orðin soldið löng færsla… Og ég á eftir að fara í bað og pakka niður og skrifa 1/2 ritgerð fyrir svefninn…
Tek sko sjúkratryggingakortið með til öryggis… hef aldrei farið á spítala í Þýskalandi.
Og Þórdís mín, onei, ég get ekki sett ítalska kjúklinginn uppskriftina hingað, því ég fattaði hana ekki sjálf… plús það er leyndó
Knús í krús
Magga



Unnur sagði,
maí 15, 2008 @ 9:34 pm
Vonandi ertu betri í fætinum…ekki gaman að geta ekki gengið!
Og uss…rauði liturinn breytist fljótt í brúnan og þú verður svaka tönnuð þegar þú kemur til Íslands í sumar
gunna sagði,
maí 17, 2008 @ 6:23 pm
æi elsku magga mín…. það er nú ekki gaman að vera alltaf á sjúkrastofnunum .. og bruninn.. ussuss.. en þetta grær áður en þú giftir þig
knús og kossar frá akureyri
Tinna sagði,
maí 19, 2008 @ 3:23 pm
heheheheh vitlaus þú…maður á alltaf að muna eftir sólarvörninni…sólin er svo lúmsk
Þú ert alveg endalaust heppin…kóngulóabit…og sýking…!
Vonandi er stuð hjá ykkur systrum..ég er bara að skrifa ritgerð…lítið stuð í því
knús á þig;*