Já… þannig er það bara!
Ég er alveg dottin ofan í þessa hljómsveit, mér finnst hún passa svo vel við andrúmsloftið úti þessa dagana. Gærdeginum var einmitt eytt í sólbaði á Oude Markt… bara næs.
Og núna er ég að reyna og reyna og reyna að skrifa critical comment um þegar Bretar stofnuðu EFTA, bara of leiðinlegt.
En ef ég þekki mig rétt, þá fer ég ekki að sofa fyrr en það er búið, svo það er kannski bara best að bretta upp ermarnar…
Annars ætlaði ég bara að tilkynna að ég var að búa til nýja síðu. Hún heitir Tilraunaeldhús Margrétar og er þarna í horninu. Úje. Svo núna vill ég að allir eldi og segi mér hvernig smakkaðist. Svei mér þá, ég ætti að opna veitingastað. Því ég er mega góður kokkur..
Alltaf ein og ein ný mynd á flickrinu.
Knús í krús



Unnur sagði,
maí 8, 2008 @ 7:25 pm
kvitt kvitt sæta.
Gangi þér vel með lærdóminn
Þórdís sagði,
maí 9, 2008 @ 7:16 pm
Hæ. Girnilegur kjúklingur. Þú verður líka að setja uppskriftina að ítalska kjúklingnum