Hæ!
Þeir sem að horfðu á veðurspánna síðustu helgi og öfunduðu mig af 22 stiga hitanum úti, geta hætt því. Ég sat á rassgatinu alla helgina og fór ekki út, fyrr en klukkan hálf sex á laugardeginum, rekin áfram að þörf í góða kaffið, og svo heim aftur. Og skrifaði og skrifaði fram á þriðjudagsnótt. Og ég er líka búin með Brussel ritgerðina! Vúhhú =) Og dottin ofan í hvað mér finnst eftirlitsstofnun EFTA mega merkilegt fyrirbæri… sooooorgleg kona!
Kíkti reyndar út í 2 bjóra á laugardagskvöldið, og that´s it. Loksins þegar ég man eftir að skrifa hvað ég hef verið að gera hérna í Belgíu, þá geri ég ekki neitt… dæmigert!
Ég fékk reyndar þetta nýja fína hlaupaprógramm á þriðjudaginn, ekkert smá spennó. Og gengur vel, so far so good. Stefni á að geta haldið við í fjölskylduna mína allavega hálfa leiðina þegar ég kem heim, sem er nú bara ágætis takmark útaf fyrir sig, þeir sem hafa séð þær mæðgur hlaupa skilja mig nú alveg…
Þar sem ég var búin að vera svona mega dugleg að skrifa alla helgina, ákvað ég að verðlauna mig í gær og tók allan daginn í frí. Sem var æði. Fór á bókasafnið og náði mér í spennandi heimildir fyrir BA, og beygla á Nosh með Evu minni og keypti mér smá dót og tékkaði á lestarmiðum til Frankfurt eftir 2 vikur og svona dúllerí. Og reyndar 2 og 1/2 tími í ræktinni, en það var bara vegna þess að ég komst að þeirri niðurstöðu að ég og spinningkennarinn deilum ekki sama tónlistarsmekk. Ég hef aldrei séð nokkurn mann jafn æstan yfir einhverju ömurlegu 80´s lagi… Daddy coooool… ég æli. Ég held líka að ég hafi óverdósað á spinning á menntaskólaárunum. Svo ég er bara hætt. Endaði svo daginn með Evu að horfa á stelpumynd. Becoming Jane. Ég fékk bara tár í augun, og svo er kallinn þarna svo mega sætur.
Og í dag er allt lokað. Svo það er tiltektardagur á Bogaardenstraat. Og ritgerðarvinna. Úje, allt að gerast í útlöndum…
Jæja, þá er ég farin að taka til, svo ég komist nú einhverntíman út í labbitúr. Svaka gott veður úti =) Held ég…
Ég þakka annars óvenju mikið af kommentum við síðustu færslu, sæta fólk. Lov jú all.
Já og próftaflan er komin, en ég á eftir að tuða, svo ég veit ekkert hvenær ég kem heim.. Ég skil bara ekkert afhverju þeir eru að hafa próftíðina svona langa og svo á bara að hrúga öllum prófunum manns á eina viku! Já nei takk! Ekki það að ég vilji ekki koma heim, ég vil bara líka ná þessum prófum…
knús í krús


