And I don´t have to take a trip to out of space…

Hæ!
Ég er með helling af fréttum!
Í fyrsta lagi, þá fékk ég póstkort frá systur minni í gær, sem er nú ekki merkilegt því hún er alltaf að senda mér póstkort… Nema hvað, þar stóð að hún myndi lenda í Frankfurt 14. maí og á flug til baka 19. maí! Ég fór næstum því að grenja úr gleði =) Ætla að fara og sækja hana á flugvöllinn og við ætlum að spóka okkur um í Þýskalandi í einn dag áður en við förum svo aftur til Belgíu og eigum yndislegan tíma saman. Bara rólegheit, sól og sumar, ekkert Brugge, ekkert sight seeing, bara Stella á Oude Markt, New Mexico og bbq…
OG, ég var í ræktinni áðan, sem er nú heldur ekki í frásögur færandi, minding my own buissness á hlaupabrettinu þegar ég lít upp á sjónvarpið. Og var þá ekki bara verið að sýna frá þegar kallinn lamdi lögguna á Kirkjusandi á fimmtudaginn! Alveg svaka langt, ég var nú bara fegin að það skildi enginn íslensku nema ég sko… fannst bæði lögreglan og vörubílstjórarnir vera hálf kjánaleg… en mér finnst þetta samt stórmerkilegt!
Jæja, ég ætlaði að fara að skrifa hvað á daga mína hefur drifið, en ég þoli ekki upptalningar… Bara bókó og kósíheit með fínum pásum inná milli. Hefur farið lítið fyrir bjórdrykkju undanfarið, enda er bara ágætt að taka sér pásu í því, plús bjór er fitandi og ég er að reyna að koma mér í betra form. Sló einmitt persónulegt met á hlaupabrettinu áðan, mega stolt =) Fæ nýtt prógramm á þriðjudaginn, við ætlum að fara að leggja áherslu á hlaupin og formun, mér finnst það ekkert smá spennandi… hahaha

Jæja, þessi ritgerð skrifar sig ekki sjálf, þarf að vera búin með allt svona dúllerí fyrir 14. maí, svo það er best að spíta í lófana…

Ciao

Og já… það er ennþá sumarveður og næs, og ógeðslega mikið af pöddum og ég hef aldrei séð svona mikið af hrossaflugum á ævi minni!

5 svör hingað til »

  1. 1

    Þórdís Edda sagði,

    apríl 26, 2008 @ 2:02 pm

    já, það er satt, þetta er stórmerkilegt!

  2. 2

    mamma sagði,

    apríl 26, 2008 @ 8:31 pm

    Dugleg !! Hlakka til að skokka með þér Golfhringinn!!
    Es. Viltu senda smááá, bara smá sól hingað á norðurhjarann?

  3. 3

    Kristin Helga sagði,

    apríl 26, 2008 @ 11:29 pm

    hæhæ takk kærlega fyrir sólina….bongóblíða á sumardaginn fyrsta :) er farin að hlakka til að hitta þig, hvenær svo sem það gæti orðið. en hafðu það rosa gott og gangi þér vel í ræktinni

  4. 4

    Fjóla sagði,

    apríl 27, 2008 @ 10:37 am

    Agalega áttu frábæra systur! Djók. Hlakka til að sjá þig =)

  5. 5

    Tinna sagði,

    apríl 27, 2008 @ 11:33 pm

    ojjjjj Hrossaflugur…ég hata þær :)

    Rosalega ertu dugleg í ræktinni… :)

    Væri sko alveg til í að vera að sötra Stellu í blíðunni með þér:)…

    Knús á þig í lærdómnum

Ummæli RSS · TrackBack URI

Say your words