Í sól og sumaryl

Vorið er loksins, loksins komið til Belgíu!
Ég og Eva brutumst inn til Völu í gær og fórum í sólbað á svölunum, reyndar bara í klukkutíma, en djöfull var næs að sitja bara í sólinni og vera heitt… Já, það er bara heitt… Ég er allavega búin að leggja vetrarkápunni og stígvélunum í bili, farin að sjá fram á fína daga á stuttermabol og pilsi, veiiii! Synd að ég eigi eftir að skrifa 3 ritgerðir og 2 critical comments, sem krefst innisetu við tölvuna…
Ok, ég var búin að skrifa ritgerð um bókasafnið, hún var leiðinleg.
Ritgerðarskrif ganga ágætlega, bara verst að leiðbeinandinn svarar ekki tölvupóstinum mínum og ég er búin að senda 2 og ég vil ekki vera dónaleg, þannig að ég er bara að leiðbeina sjálfri mér á meðan, og er hæstánægð með afraksturinn. Jájájá, alveg viss um að þetta verður tímamótameistaraverk á 30 bls… sérstaklega í þessu ljósi… Magga komin með tromp :)
Djók.

Jæja, ég fékk mér rauðvínsglas til að drekka með lestrinum, glasið er að verða búið og ég er ekki byrjuð að lesa. Og það er 18 stiga hiti á miðvikudaginn… lífið er ljúft!
Knús í krús

Ég ætlaði sko að blogga miklu miklu meira, ég bara gleymi alltaf öllu um leið og ég logga mig hingað inn, sorrý…
Já, og ég er ennþá að fara í heimsreisu, úje

2 svör hingað til »

  1. 1

    Þórdís Edda sagði,

    apríl 21, 2008 @ 10:33 pm

    Það væri mjög fallega gert af þér og mjög svo vel þegið ef þú sendir þetta veður hingað til Reykjavíkur þann 2. maí næstkomandi. Takk fyrir, gangi þér vel og góða nótt :)

  2. 2

    Sigurrós sagði,

    apríl 25, 2008 @ 11:57 pm

    ohhh… hvað þetta hljómar ljúft. sól og sumar í apríl :) *öööööfuuuund* gangi þér vel með ritgerðirnar!

Ummæli RSS · TrackBack URI

Say your words