It´s not your kingdom too

Þegar ég byrjaði að blogga, sem var vorið 2001, þá var ekki til neitt sem hét commentakerfi. Ég man að í öðrum bekk fékk ég mér gestabók og fór að rífa kjaft við Finn á henni… Góð saga. Ég vil fá comment á bloggið mitt. Bara eitt svona láttu þér batna Magga, ömó að vera einn veikur í útlöndum eða eitthvað… Já ég er veik. Eða eitthvað. Mér er búið að vera óglatt með æluna í hálsinum í tvo daga, og það er ömurlegt! Sérstaklega afþví að ég fékk pakka frá Íslandi í dag. Með þristum og nóa súkkulaði og apollo lakkrís. nammi nammm :p
Mamma sendi mér líka bók. Sem heitir “Þú ert yndisleg dóttir”. Enda er ég yndisleg dóttir… Vegna þess að eftir 23 og hálft ár, þá held ég að mamma mín sé ennþá rólegust þegar ég sef… ég er ekki búin að segja henni frá heimsreisunni sem ég er að plana í huganum núna :S En allavega, mamma merkti við eina blaðsíðu í bókinni, og mér fannst það svo fallegt að ég bara varð að setja það hérna inn..

Stundum vildi ég að ég gæti látið rætast úr öllu hjá þér. Stundum vildi ég að ég ætti nóga peninga til þess að veita þér það sem þig langar í. Stundum vildi ég að ég ætti fjársjóð sem að þú fengir í arf.
Ég gaf þér það sem ég átti - fimm næm skilningarvit, veröldina sem umlykur þig. Taktu það allt, bættu undrum þínum við öll önnur undur og miðlaðu til annarra hæfileikanum til að elska. Það nægir.

Ok, ég er ekki viss hvort hún hafi verið að meina þetta eða hitt, en hitt var um að knúsa ketti og að upplifa heiminn í kringum sig, og ég er endalaust að því hvort sem er… en ég elska þig elsku mamma mín =)

Annars lánaði ég íbúðina mína fyrir afmælið hennar Kötu um helgina. Það var súperstuð… Svo læstist ég inni á mínu eigin klósetti. Hundlengi. Gunni þurfti að skríða inn um baðherbergisgluggann hjá mér og ég hef ekki hugmynd um hvernig hann opnaði.. Og allir þurftu að fara til Völu að pissa, því það komst enginn inn. Góð saga. Líka rosalegt djamm. Bara gaman að því. Svona tveimur dögum seinna allavega…

Sá sem getur sagt úr hvaða lagi fyrirsögnin er fær súkkulaði. Sko Leonidas! Ég er glorhungruð. Kannski bara hætt með ógleðispesti =) Kebab kallinn veit hvernig kebab ég vill…. Ég er hætt að fara til hans í bili bara… Sem þýðir reyndar að ég þarf að treysta á sjálfa mig í eldamennsku, veit ekki hvort það sé sniðugt.
Jæja! Þarf að klára Political Marketing bókina og senda spurningarnar á kennarann á innan við 3 tímum, mér finnst þetta bara of mikið common sense til að vera að pæla í einhverjum spurningum, hólí mólí!
Knús og takk fyrir commentin sem þið eruð að fara að skrifa =) Lov jú

4 svör hingað til »

  1. 1

    Fjóla sagði,

    apríl 15, 2008 @ 8:38 pm

    Hah! Ég veit svarið, fæ ég súkkulaði?

  2. 2

    Hæ Maggis sagði,

    apríl 15, 2008 @ 10:59 pm

    láttu þér batna! og sendu mér allt nammið sem þú fékkst…ég er fátæk og hef ekki efni á því sjálf ;o)

  3. 3

    Unnur sagði,

    apríl 16, 2008 @ 4:23 pm

    Láttu þér batna sæta mín. Og gangi þér vel í útlandinu :)

  4. 4

    Þórdís Edda sagði,

    apríl 17, 2008 @ 5:22 pm

    HÆ. Er þér hætt að vera óglatt? Mig langar í súkkulaði en ég veit samt ekki lagið. Ég á reyndar kit kat. Get kannski bara fengið mér það. Knús!

Ummæli RSS · TrackBack URI

Say your words