Nothing brings me down

Ég fór uppí rúm með bók á fimmtudagskvöldið, ætlaði bara að lesa einn kafla fyrir svefninn. Ég lagði bókina frá mér klukkan hálf átta morguninn eftir. Ég er ennþá að hugsa um þessa bók, hún tók allan tilfinningaskalann, ég hló og grét og varð glöð og reið og sorgmædd… á bara varla til orð. Mæli óhikað með Þúsund bjartar sólir fyrir alla þá sem hafa ekki nú þegar lesið hana.
Annars komu ferðalangarnir heim á föstudaginn. Og ég er búin að djamma alla helgina. Úff! Þannig að núna verður maður bara að vera duglegur að passa uppá sjálfan sig næstu dagana. En allt í lagi, mæting á bókasafnið klukkan 10 í fyrramálið, næsta vika verður tekin í lærdóm og ekkert annað.
Vorið er að koma í Belgíu. Það er yndislegt. Mig langar samt heim til Íslands. Og ég ætla að koma heim til Íslands og kannski bara vera þar í langan tíma. Og ég hlakka til =)
Ég hljóp í gær, í dag er ég að drepast úr strengjum. Og ég er ömurlegur bloggari! Jeminn eini!
Farin að elda kvöldmat og laga til í hausnum á mér eftir helgina!
Ciao

Say your words