Ég keypti kaffi á laugardaginn. Það er svo ógeðslega gott að ég get ekki hætt að drekka það. Sem gerir það að verkum að ég sef ekki. Það og allar ímynduðu moskítóflugurnar í herberginu. Það er eitur í spreybrúsa við hliðina á rúminu mínu.
Hefur einhver pælt í því, afhverju allt fólk sem vinnur í bakaríum er svona ógeðslega næs? Það er bara næs fólk sem vinnur í bakaríum held ég. Og stólarnir á bókasöfnunum hérna eru harðir. Allir saman. Ég hugsa bara hlýlega til bókhlöðunnar núna, þau eru með mýkri stóla. Og enga Belgakjána sem kunna ekki að þegja.
Já, og ég var að reikna út. Námslánin mín eru búin að lækka um sirka 240 evrur á mánuði síðan í janúar. Útaf genginu. Það er ekki falleg saga.
En fallega sagan er að 17. apríl verð ég búin með eitt námskeið. Vúhhú! (Nema prófið… en búin að lesa… )
Þess vegna ætla ég að lesa Political Marketing fram að spinning.
Djöfull er ég stolt af nýja lífinu mínu!



Tinna sagði,
apríl 2, 2008 @ 2:42 pm
Til hamingju með nýja lífið Magga mín
og já þetta er yfirleitt rétt hjá þér með starfsfólkið sem vinnur í bakaríum….ég vann einu sinni í bakaríi
gangi þér vel að læra;*
Kristjana sagði,
apríl 3, 2008 @ 2:00 pm
Hvernig var þetta kaffi sem þú keyptir?
þórdís sagði,
apríl 3, 2008 @ 4:52 pm
vá, hef ekki dottið um þetta vinsamlega bakaríisfólk. Sérstaklega ekki þegar Tinna var að vinna í bakaríinu. Ó mæj.. hehe Til hamingju með kaffið samt.