Sumartími

Ég er bara alls ekki sátt við þennan sumartíma. Mér finnst bara frekar skítt að einhver geti bara tekið heilan klukkutíma af mér eins og ekkert sé!
Ok, ég veit að ég fékk auka klukkutíma í haust, en ég var ekki skynsöm, ég eyddi honum í baði… öllum.
Ég fattaði í nótt að ég væri að missa einn klukkutíma. Sem gerði mig svo stressaða yfir tíma yfir höfuð að ég sofnaði ekki fyrr en 6 í morgun (sem hefði átt að vera 5).
Jájájá, Magga kjánaprik var að fatta að hún hefur ekki nema 2 mánuði. Skrítið hvað tíminn flýgur alltaf frá manni. Þannig að næstu 2 mánuðir munu fara í að sitja á rassinum og reyna að koma einhverju í verk. Tek mér bara pásu ef Jónsi kemur. Svo er ég komin með með tjaldsvæðisþrá… sem er eiginlega bara fyndið. En ég ætla að sjá til.
Það er reyndar ekkert skrítið að mann langi frekar til að njóta íslenska sumarsins úti í náttúrunni heldur en að fara að finna sér fullorðinsvinnu til tilbreytingar…
Og Halla kom með ost. Og í gær, eftir langa leit fann ég ostaskera. Það er æði. Ristað brauð með osti og sultu í matinn… nammi nammi namm…

Jájájá, á eftir að blogga á hverjum degi næstu 2 mánuðina, því einhvernvegin verð ég að halda geðheilsunni… sem segir bara það að törnin er byrjuð.

Bring it on!

1 svar hingað til »

  1. 1

    Kristjana sagði,

    mars 31, 2008 @ 4:13 pm

    ég skil þig vel..hver vill fá sér fullorðinsvinnu strax! Það er allt of mikið fullorðins..
    gott að sjá að þú er farin að blogga aftur :D vonandi fer vorið að koma til þín hvað á hverju :D Kveðjur af Eggerts..Chris

Ummæli RSS · TrackBack URI

Say your words