3 dagar í sumarfrí!!!

Ég hefði ekki þurft að læra Lisbon sáttmálann, né nokkuð annað… Ég hefði semsagt ekki þurft að eyða síðustu 2 dögum í stresskasti, svefnleysi og lystarleysi því þetta próf var ekkert erfitt! Bara búið á nóinu, og afþví að ég gat svarað öllu, þá er ég að sjálfsögðu farin að velta því fyrir mér hvort að ég hafi kannski smá oggu poggu ef til vill fallið… mætti halda að maður væri haldinn sjálfseyðingarhvöt!
Ef að kennari brosir, og segir svo “you survived” hvernig í andskotanum á maður að túlka það???
En það góða er allavega, að þetta var sigur fyrir sálina. Sigur að fara í munnlegt próf og gera sitt besta, og lifa það af, sem er klárlega egóbústið sem ég þarf á að halda fyrir næsta, sem er á föstudagsmorguninn. Því það er einmitt próf sem ég sleppti að taka, af hræðslu minni við munnleg próf, á síðustu önn. Svo sama hvernig fer, þá ætla ég að fara þarna inn og gera mitt allra allra besta!
Af einhverjum ástæðum finnst mér ég líka vita heldur mikið meira um environmental politics núna heldur en í janúar :p

Jæja, kominn háttatími fyrir stressaðar stelpur.
Ísland eftir viku…. mjög mjög mjög blendnar tilfinningar.

Ummæli (2) »

Hmmmm

Fyrst að Írar höfnuðu Lisbon sáttmálanum, ætli það þýði að ég þurfi SAMT að læra hann fyrir prófið á þriðjudaginn??
Sem er, bæ ðe vei, klukkan HÁLF NÍU um kvöldið! Ég veit ekki á hvaða lyfjum ég var þegar ég skráði mig… Hefði helst viljað klára þessa próftíð ekki seinna en í gær…

No comment »

One fine daaaaaayyyyy

Ég er búin að vera í íþróttabuxum í viku. Fyrir utan þegar ég mætti í pilsi í eitt próf og fór svo út í sólbað í stuttbuxum. Annars alveg í heila viku, mega sexý….
En já, mér tókst að vakna í bæði prófin, þrátt fyrir 2 tíma svefn fyrir fyrra prófið og 3 tíma svefn fyrir það seinna. Sem er jú í lagi, enda er enginn svefn jafn réttlátur og yndislegur og kúr eftir próf, mmmmmm =)
Búið að ganga ágætlega, ég vona nú að þetta sleppi allt saman, en ég er orðin mjög, mjög þreytt. Mér finnst ég vera búin að vera í nánast stanslausri lærdómstörn síðan í lok mars. Fyrir utan góðar pásur með Lilju og Fjólu… Svo er hugurinn ekki hérna lengur, hann er á tjaldsvæðunum… Og ég er farin að sakna miðnætursólarinnar. Og systra minna, allra. Og svo langar mig líka að vera skotin í einhverjum… mega langt síðan ég hef verið skotin í einhverjum =(

Já, og Írar eru komnir í hóp þjóða sem ég þoli ekki í augnablikinu. Þeir deila fyrsta sætinu með Svíum, sem að munu alltaf, alltaf vinna keppnina. Að hafna Lisbon í þjóðaratkvæðagreiðslu af því að þeir skildu hann ekki! Halló! Fyrst að ég skildi fjárans sáttmálann, þá hljótið þið að geta gert það líka! Svo eru þeir heldur ekkert sætir…

Ég tosa svo mikið í hárið á mér, að ég sver það að það verður allt farið af eftir viku…
Ok, búin að snúa við sólarhringnum, svo ég ætla að læra meira og meira og meira.
takk fyrir kommentin sæta fólk =)
Knús í krús

Margrét Helga Guðmundsdóttir, sérfræðingur í Evrópusambandinu =)

No comment »

Á næsta ári…

Ég hugsa rosalega mikið í próftíð.
Ég var að lesa mbl.is, og þá hugsaði ég, að í fyrsta skiptið í mörg ár, þá langar mig virkilega til að taka þátt í kvennahlaupinu. Veit ekki hvort það sé vegna þess að ég held að ég sé loksins búin á gelgjunni, eða vegna þess að í fyrsta skiptið í mörg ár, gæti ég virkilega skokkað skemmtiskokkið án þess að drepast á leiðinni… Fyndið hvað það er mikið sem maður ætlar að gera á næsta ári, eða í næstu viku… Í fyrra ætlaði ég að taka mér sumarfrí á næsta ári, og var í rauninni harðákveðin í því þangað til gengið fór á flug, og ég fékk af einhverjum sálrænum ástæðum kaupsýki á sama tíma… Þannig að ég stefni á sumarfrí… á næsta ári.
Ok, ég ætlaði að skrifa meira, og líka um ægilegar sápupælingar sem að leiddust útí pælingar um fyrrverandi tilvonandi ástmanninn sem var að senda mér póstkort og kom öllu af stað aftur sem að leiddust útí pælingar um rússíbanann sem að sálarlífið mitt er búið að vera í síðasta árið… En Steini var að senda mér Íslensku Leiðina á pdf, húrra fyrir honum! Svo núna ætla ég að lesa áður en ég dembi mér í síðustu tvo kaflana í Europe Recast. Metnaðurinn er ekki að gera sig fyrir þetta próf, plús ég fékk tak neðst í bakið í gær þegar ég dröslaðist með 20kg kassann minn á pósthúsið (sem var svo lokað og það var rigning og ég fór næstum því að grenja..) svo ég hef nú bara áhyggjur af því hvernig ég eigi að ná því að sitja 2 tíma próf á grjóthörðum stól :S
Þeir á Íslandi sem verða vaknaðir klukkan 6 á mánudagsmorguninn, mega hringja í mig, ég er dauðhrædd um að sofa yfir mig!
Bæjó

Ummæli (3) »

15 dagar!

Það er svo gaman að svona niðurtalningum… vúhhú!
Eftir 15 daga, þá verð ég ekki að læra! Sei sei nei. Þá ætla ég að vera að gera eitthvað annað, sem ég er ekki búin að ákveða… Eins og kannski bara ekki neitt =)
Ég er hætt að vorkenna sjálfri mér fyrir að vera ennþá í prófum. Því ég er að lesa um sjálfbæra þróun, og það er svosem margt verra í heiminum en að vera í prófum til 20. júní… Eins og að vera í prófum til 30. júní…
Annars líða dagarnir allt of hratt! Fór í Ikea á laugardaginn, og kom heim með slatta af pappakössum. Var búin að fylla þá á 10 mín, og hef ekki snert þá síðan… Mun taka mér klukkutíma pásu á morgun til að druslast með þetta niður á pósthús, vonandi… Komst líka að því á mánudaginn, þegar þrumuveðrið var hálfnað, að niðurfallið útí porti var stíflað. Og vatnið var ca 4-5cm frá því að leka inní íbúðina mína. Það var ekki skemmtilegt… en ég er trukkur og lagaði niðurfallið =)
Fór svo á Sex and the City í gær. Og það tók 3 klukkutíma takk fyrir! Belgar greinilega ekki að flýta sér í bíói… jesús! Og ég varð fyrir smá vonbrigðum með myndina, segi ekki annað! Samt er ég ennþá að hugsa um hana, og þarf pottþétt að fara aftur, til að skoða fötin betur…
Og þó ég gæti talað illa um Belgíu, og Belgakjánana í marga, marga daga, þá finnst mér samt mega sorglegt að vera að fara heim :(
Jæja, pásan búin, á eftir að lesa soldið mikið í dag, og ég hafði hugsað mér að hlaupa einhverja kílómetra líka, í spandexbuxum… úje =)
Pabbi minn á afmæli í dag, til hamingju með afmælið!

Ok, bæ!

Ummæli (2) »

Silence is golden

Hver sá sem að hefur gengið í gegnum próftíð með iðnaðarmenn vinnandi í næstu íbúð/húsi, og lifað það af er vinsamlegast beðinn um að setja sig í samband við mig. Því það er verið að gera upp húsin báðum megin við mig. Og fjárans þrjóskan í mér, að klára áður en ég fer að sofa, gerði það að verkum að ég fór ekki að sofa fyrr en undir morgun. Ég held ég hafi náð 4 tímum áður en hamarshöggin byrjuðu báðum megin við mig. Eyrnatappar virka ekki á þetta, öll bókasöfn eru stútfull af hávaðasömum Belgum, þannig að ef að þetta heldur áfram eru miklar líkur á að ég komi heim, og fari beinustu leið inná geðdeild. Án gríns… Ég veit alveg að ég fer yfirleitt í gegnum próftíðina á 4-5 tíma svefni á nóttu, en það á ekki að byrja þegar það eru heilir 10 dagar í fyrsta próf!
Annars er ég hálfnuð með BA ritgerðina mína. Og það er mikil, mikil gleði. Fyrir utan þá staðreynd að mér finnst þessi ritgerð vera tímamótaverk og afskaplega, afskaplega merkileg… að sjálfsögðu. Á morgun á ég svo fund við manninn sem að vinnur fyrir umhverfisráðuneytið í sendiráðinu í Brussel, og eftir þann fund verð ég vonandi komin með góðan ramma fyrir framhaldið. Og ég er búin með öll verkefni hérna, svo það er ekkert eftir nema frumlestur ca 7 greina, og þá er ég opinberlega betur stödd fyrir þessa próftíð heldur en nokkra aðra sem ég hef farið í, í mínu háskólanámi. Víííí =) Rosalegur dugnaður í gangi…
Og ég eldaði plokkfisk í gær! Alveg hellings helling! Í fyrsta skiptið sem að það er fiskur í matinn á þessu heimili síðan ég kom til Belgíu. Því að Fjóla sá alltaf um að elda fiskinn…
Jæja, hætt að vorkenna mér. Ætla í bað og stunda svo hugleiðslu, eða eitthvað sem virkar til að útiloka þessi hljóð, og halda lestrinum áfram. Þeir sem að villast ennþá hingað inn mega endilega skilja eftir spor, það gleður mitt litla hjarta óendanlega á þessum langa, langa lokaspretti….
Mig langar samt mest bara að fara að sofa…

Kyss og knús
Magga

Ummæli (4) »

Boooooring!

Það versta við þessar síðustu vikur, er að það eru nánast allir aðrir komnir í sumarfrí… Ég les öll blogg svona 6 sinnum á dag, held ég sé búin að skoða prófílinn hjá öllum vinum mínum á facebook, og þeir eru 161. Ég er meira að segja farin að lesa blogg hjá fólki sem ég þekki ekki baun í bala, og hef aldrei á ævi minni séð! Sorglegt en svona er þetta…
Held ég sé hálfnuð með BA, allavega hálfnuð með það sem ég var búin að ákveða að skrifa, sendi inn efta ritgerðina í síðasta skiptið í nótt og gerði eitt critical comment á bókasafninu áðan. Sem þýðir að ég á bara eitt eftir. Loksins búin að ákveða hvað ég ætla að skrifa um, bara best að bretta upp ermarnar og klára það! Því ég veit vel að ég fer ekki að sofa fyrr en það er búið… þekki mitt fólk…
Um leið og öll verkefni eru búin get ég líka farið að slökkva á tölvunni, sem betur fer, hef engan sjálfsaga…
mega leiðinleg færsla, sorrý… þær verða allar megaleiðinlegar næstu 29 dagana… Það prumpaði samt einhver á bókasafninu áðan… í þessum hita líka.. ó mæ! ógeð! Og það var hápunktur dagsins =)

Farin að kaupa mér súkkulaði, mig langar svoooo
2 vikur í fyrsta prófið… úje!
Ciao!

No comment »

4 vikur!

Ójá… eftir 4 vikur verð ég vonandi búin með síðasta prófið mitt í stjórnmálafræði… Var einmitt í síðasta tímanum á þriðjudaginn, rosalega skrítið…
Allar ritgerðir og verkefni búið, nema 2 critical comments sem ég nenni engan vegin að pæla í… Og upplestrarfríið hafið. Ég ætla reyndar bara að nota helgina í að vinna í BA ritgerðinni og koma mér aftur í hlaupaform, ekkert búin að geta hlaupið útaf þessari sýkingu, en það á að vera orðið gott núna.

Annars er ég búin að panta flugfarið mitt heim. Á bókað sæti með Eurostar kl 16 held ég 24. júní, og svo flug til Íslands klukkan 21. Hlakka mikið mikið mikið til að koma heim, enda eru næstu 4 vikurnar hérna ekkert rosalega spennandi… Kem svo til Akureyrar 25. júní og byrja vonandi að vinna 26. júní. Þá verð ég líka búin að knúsa þessa í kaf…

Best og sætust, og sakna hennar helling…

Ef ég ætlaði að segja eitthvað merkilegt, þá er ég búin að steingleyma því, svo ég ætla að hella mér aftur í ritgerðina í smá stund fyrir svefninn…

Kyss og knús til Íslands!

Ummæli (2) »

Ég á að vera að skrifa ritgerð… Og hvað er þá betra en að blogga bara, svona á meðan ég bíð eftir að Desperate Housewifes er búið að streemast?!
Og no worries mamma… ég er búin með 4 bls og ritgerðin á bara að vera 5… sem er ástæðan fyrir að ég er í pásu, ég er að hugsa um hvað ég ætla að taka úr þessu.
En já. Ég fór til Þýskalands í síðustu viku. Í einu skónum sem ég komst í, sem voru einhverjir sandalar. Og það var MEGA sárt þegar sólin skein á fótinn minn :( Og mér leið ömurlega að geta ekki gengið og eyðileggja allt fyrir Fjólu og Gerðu frænku sem við gistum hjá. En ég á svo klára fjölskyldu! Gerða lánaði mér hjólið sitt, svo að ég þurfti ekki að labba neitt, heldur hjólaði bara út um alla Mainz, sem hér eftir verður kallaður bleiki bærinn. Æm in lov! Er án gríns alvarlega farin að íhuga það að læra þýsku á næsta ári, Þýskaland er ódýrara en Belgía, og jeminn hvað það er fallegt! Vorum líka með svo góðan gæd =)

Hér erum við Fjóla á æði stað í Mainz, að bíða eftir bestu samloku í heiminum =)
Um kvöldið fórum við svo á eitthvað sem ég veit ekki hvað heitir, þegar fólk fær einhvern ákveðinn tíma uppi á sviði og getur performerað. Flestir voru nú að lesa einhver ljóð á þýsku og ég skildi ekki baun í bala, bara einstaka orð. En það var samt mjög fyndið.

Hér eru Fjóla og Gerða fyrir utan lestarstöðina í Mainz. Við vorum á leiðinni til Frankfurt og Gerða var að fara að læknast. Hún er sko mega góður læknir! Svo eyddum við fimmtudeginum í Frankfurt, fengum okkur þýskan bjór og bretzel, sem ég lifi nú alveg af án þess að borða aftur á ævinni, kíktum í búðir og túristuðumst og lékum japanska túrista. Svo um leið og við fórum á lestarstöðina þá byrjaði að rigna. Smá stress að ná lestinni frá Köln til Liége, og ég var ekkert að hjálpa systur minni með töskurnar heldur, og svo helli helliringdi þegar við vorum komnar til Leuven. Svo það var bara pöntuð pizza og horft á dvd, mega kósí =)
Og á föstudeginum var það Brux, innflytjendahverfið, Atomium í 3ja skiptið á þessu ári, ég var nú ekki skemmtilegur gæd, soldið þreytt á þessu… Og aðeins verslað og tékkað á pissukarlinum og svona skemmtilegt. Og new mexico um kvöldið. Og let´s just say að það sé búið. Ég held ég sé búin að borða þarna 12 sinnum, og ég er komin með nóg… loksins. Og á laugardeginum vorum við að dúlla okkur, og versluðum svo helling og höfðum það kósí og nenntum ekki einu sinni út um kvöldið. Enda er miklu skemmtilegra að fara í gegnum fataskápinn sinn með systur sinni og fíflast. Og á sunnudeginum fórum við í langan labbitúr um Leuven og ég sýndi Fjólu allt sem ég gat ekki sýnt henni síðast, tékkuðum á froskakynlífi og meira skemmtilegt. Einn bjór á Oude og svo heim að kúra. Ég fíla systur mína. Hún er æði, það var æði að fá hana. Enda fór ég bara pínu að skæla þegar lestin hennar var farin í morgun =( Þangað til hún hrindgi í mig frá Liége til að segja mér að Thalys lestinni hefði seinkað um hálftíma, sem þýddi að hún missti af lestinni frá Köln til Frankfurt. Smá stress að finna aðra lest og komast á völlinn í tæka tíð, en það reddaðist alveg fyrst ég er að tala við hana á msn núna =)

Hér er Fjóla í garðinum að leita að froskakynlífi… djók, það er bara ég sem er með það á heilanum… en falleg brú samt =)

Annars er síðasta prófið mitt 20 júní, og þegar ég er búin með þessa ritgerð ætla ég að fara að panta mér flugfar heim. Stefnan er að koma heim til Íslands 24 júní, til Akureyrar 25 og helst að byrja að vinna 26! Hlakka mikið til, mikið að gera þangað til, en það verður afskaplega gott að komast heim.
Og af sólbrunanum mínum er það að frétta að ég fór að flagna. Helling! En það er að lagast. Enda er ég búin að vera óvenju upptekin af brjóstunum á mér undanfarna daga, alltaf að plokka skinnið.
Ok, núna ætla ég að klára þessa fjárans ritgerð og fara svo að kúra undir góðu góðu sænginni minni. Það er sko kalt úti og ég á bók, um shopaholic… and a sister =)
Sorrý hvað þetta var löng færsla. Heimsóknunum hingað fer reyndar stórminnkandi, en það fylgir víst sumarfríum og próflokum… brotna ekki!
Knús til allra

Ummæli (4) »

Aumingja, aumingja ég!

Ég virðist ætla að vera fastagestur heilbrigðisstofnana í hverju einasta landi sem ég bý í. Og þess vegna get ég sagt af fullu hjarta: Guði sé lof fyrir EES- samninginn, og það ætti nú endilega að fara að hefja samningaviðræður við ESB af alvöru!
Þetta var reyndar tíðrætt um helgina, enda var hún Lilja í heimsókn hjá mér. Dröslaðist í rútu alla leiðina frá Strassbourg, sem ég bara myndi aldrei nenna… En við áttum svaka góðan tíma saman, rólegheit og sól. Endalaus sól. Hún er búin að skína stanslaust í 2 vikur, og 20-25 stiga hiti uppá hvern dag, þetta fer nú bara alveg að verða gott í bili held ég… Enda hefur maí ekki verið svona góður í Belgíu í meira en öld, sagði kennarinn minn áðan.
En Liljuheimsókn var mega næs. Sýndi henni allt það merkilegasta í Leuven, við sáum fullt af froskum fjölga sér, new mexico, café komeet og nosh. Bara næs! Svo þegar hún var farin hljóp ég í síðasta skiptið í bili, því miður :(
Í gær skelltum við Íslendingarnir okkur svo á ströndina til Ostende. Það var GEÐVEIKT! Atlantshafið var að vísu pínu kalt, en vandist furðu fljótt. Hræðilega gaman að leika sér í öldunum. Mér fannst ég nú ekkert liggja neitt mikið í sólbaði. Plús ég var staðráðin í að fá lit á mallann, fannst ekkert svo hlýtt útaf vindinum og hélt að sólin í maí væri nú ekki svo sterk, og þar af leiðandi bara með sólarvörn á öxlunum… Boy I was wrong! Kom heim í gærkveldi, og ég er lobster! Beint í kalt bað og þurfti að taka 3 verkjatöflur til að geta sofnað. Í gammosíum, sokkum og langermabol btw… Ég hef sko aldrei brunnið svona mikið!

Þetta er mynd af mér, nýkomin heim að væla í mömmu minni á skype… En svo fékk ég eitthvað mega krem í apótekinu í morgun, sem svínvirkar. Er orðin passlega brún uppað brjóstum, restin er ennþá rauð, en held það lagist fljótlega =)
En það var líka ekki ástæðan fyrir að ég vaknaði klukkan 6 í morgun. Onei…
Ég hef verið bitin í aðra ristina fyrir svona 1-2 mánuði, pottþétt af köngulónni sem ég sópaði út um daginn… og það klæjaði bara stundum, og ég bar á það og hugsaði svo ekkert útí þetta. Svo í gær byrjaði það aðeins að hlaupa upp, og hélt áfram. Og áfram. Og ég gat ekki sofið. Svo ég fór til læknis í dag. Og þá kemur í ljós að ég er með sýkingu í löppinni. Hún er tvöföld og ég get ekki gengið. Er komin á sýklalyf og sterakrem og þarf að fara aftur til læknis á föstudaginn. Þess vegna elska ég EES- samninginn. Því það kostar að fara til læknis, og fátækir námsmenn veifa ekki 100 evra seðlum hingað og þangað…
En það versta er, að ég á miða með lest til Frankfurt í fyrramálið!
Fjóla er loksins, loksins að koma, og þá get ég ekki gengið :( En ég held í vonina að þessi lyf geri kraftaverk í nótt. Keypti líka sun lolly til að kæla, en ég borðaði hann… Sem betur fer er Fjóla 3/4 sjúkraþjálfari, og Gerða frænka sem við ætlum að gista hjá í Þýskalandi er splunkunýr læknir =)

Úff, þetta er orðin soldið löng færsla… Og ég á eftir að fara í bað og pakka niður og skrifa 1/2 ritgerð fyrir svefninn…
Tek sko sjúkratryggingakortið með til öryggis… hef aldrei farið á spítala í Þýskalandi.

Og Þórdís mín, onei, ég get ekki sett ítalska kjúklinginn uppskriftina hingað, því ég fattaði hana ekki sjálf… plús það er leyndó :)

Knús í krús
Magga

Ummæli (3) »